Þá er komið að því.. ný
færsla..
'Eg skellti mér sem sagt á páskaballið og það var bara
alveg sérdeilis prýðileg skemmtun. Fór með Regínu,Guðný og
Aðalheiði ásamt fleirra fólki en týndi svo öllum nema Guðný og við
röltum þarna um og dönsuðum alveg helling, ég hef bara ekki enst
svona lengi á djammi æi alveg mörg ár held ég bara, var ekki komin
heim fyrr en um 5
Sólveig og Arnar kíktu á okkur eina kvöldstund og við
kíktum með þeim á mörkina. Það var bara ágætt fyrir utan að manni
líður stundum eins og apa í búri. Eins og maður sé til sýnis í
dýragarði en skannski er maður bara svona ferlega skrítin... maður
spyr sig;D
'Eg fór í bæinn um síðustu helgi að versla með Abz, Guðný
og Alex. Mjög árangursrík verslunarferð verð ég að segja. Var alveg
rosalega gaman hjá okkur
Fékk sennilega mesta hláturskast sem ég
hef fengið og réð bara ekkert við mig. Þurfti alveg að standa upp
og fara frá Stjörnutorginu til að ég myndi ekki deyja úr hlátri.
Það er sko of mikið af skrítnu fólki í
Kringlunni.
Er líka búin að ákveða það að fara í skóla í haust. En
samt bara fjarnám til að byrja með. Maður verður alveg að vera með
svipuna á sjálfum sér ef maður ætlar að ná
þessu
'A síðasta laugardagskvöld ætlaði ég aldeilis að horfa á
eurovision og gerði það að vissu marki en neii svo var bara allt í
einu köttað á það og kosningasjónvarpið byrjaði. Þeir sem þekkja
mig vita það að eurovision er eikkvað sem ég má bara ekki missa ef
ekki eina mínútu þannig að þetta var ekki líklegt til
vinsælda
En já er að hugsa um að segja þetta gott í bili Yrsa er
farin að heimta athygli. Hún ætlar nebbla að vera hérna hjá okkur í
dag og nótt og fer svo til Eddu og kemur svo aftur til okkar á
mánud. 'Otrúlega gaman hjá okkur
En við sjáumst elskurnar:*